Hér er ég,eina sanna ég :D

31.08.2007 12:54:06 / maren

síðasti virki

dagurinn í bráð sem ég er heimavinnandi....jíhaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa...

LATER!!!!!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 16:20:55 / maren

Kannski komin smá tími til

að blogga smotterí..Þjóðhátíð var snilld út í gegn ;) Verður þokkalega farið á næsta ári með uppblásna Kidda the Hulk krókódæl híhíhíhí.. Þetta djamm tók smá toll af heilsunni næstu vikuna á eftir hehehe.. Þarseinustu helgi var skellt sér á fjölskyldumót í bústað í Grímsnesinu..bara gaman og var fundið þetta flotta nafn á hópinn "gífurlega hallærislegt húllumhæ ;) Og ákveðið var að gera þetta árlega ;) Hlakka til næsta móts....Við maggi and the big familí sem við erum vorum áfram í bústaðnum í 2 daga og höfðu mömmu með okkur :) Flott að slappa af í pottinum og svona.... Seinasta laugardag var svo farið í kveðjupartýið hans Stjána mágs og var nokkuð svona drukkið og haft gaman.. Mánuður í spánarferð og er ég komin með stórann stórann kvíðahnút fyrir þessu flugi og því mér finnst svo gaman í flugi eða þannig...neyðist ég til að vera 7 tíma á leiðinni :S:S:S Millilending einhverstaðar og geggjuð skemmtilegheit fyrir flughrædda konu sem meikar ekki 6 mín frá Bakka til Eyja HVAÐ þá 7 tíma ferð og 2svar farið upp og 2svar farið niður :S Heimleiðin er þó betri en spurning hvort ég flytji ekki bara til Spánar vegna hræðslu við að fara svo heim í flugi :Þ :$  Svo er það bara bjórinn og slapperí af þarna úti ..

Vika í aðlögun hjá dagmömmu og kellan að fara út að vinna á daginn..verður viðbrigði en hlakkar mig samt til.. :)  Nóg af þessu í bili...CIAO


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 14:37:46 / maren

fínasta helgi

Barasta..já..... Hentumst í borg óttans..skildum eitt barn eftir..blæddum í þvottavél..hurðahúna og rauðköflótt beljustígvél sem mér finnst svo ljót að þau verða sæt eiginlega.. Á laugardeginum komu Sara,Stjáni,Albert,Tjörvi,Gunní,Bjarni og Sigurrós í grill..Sigurrós og Bjarni mættu á hestbaki í grillið :D Étið var gott læri með meðlæti..svo var spilað,borðað nammi og sötraður bjór frameftir nóttu ;)..Ýkt gaman híhíhí... Í gær var skellt sér niður í fjöru og fíflast þar..á jeppanum..fjórhjóli og svo krossurum..Ég sem engu þori alltaf er alltaf að komast að því að ég þori ýmsu hehe.. Keyrði jeppann í smátíma í fjörunni og svo allt í einu birtist bara ein 90 gráðu beygja :Þ Maggi sagði ekki hafa munað miklu að ég hefði velt jeppanum ...úppppsssssssssssss..kreisí dræver ég :Þ  SVo er það bara eyjar ekki á morgun heldur hinn...hlakka svo til en samt svo skrýtið því ég hef aldrei verið svona lengi frá börnunum mínum:|...reyndar ekki góð spá en whatever :Þ

Núna er pakka..pakka fyrir alla fjölskylduna..mikið að gera þannig að bara LATER

BLEeeeeeeeee....:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 23:28:07 / maren

Snobb eða hvað

Gat verið hehehe....Vorum búin að ákveða að kaupa hurðahúna sem okkur virkilega langaði í.........Mín búin að skoða og skoða og já fann þá..sagan ekki búin.....Nei þeir einu sönnu og ég get ekki hætt að hugsa um kosta örugglega hjúmanges mange penge.. enda eftir svaka hönnuð...já hvernig fer ég að þessu.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 17:53:57 / maren

Vika!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Vika í eyjar....*tilhlökkun er mikil*.... Byrjaði í dag á b vítamín kúrnum svo ég kannski fái aðeins minni þynnku...er  ekki þekkt undir því að vera ofurhress deginum eftir *hóst* Já 5 dagar framundan....af yndisleguskemmtilegu rugli... ;)

Ég og Tinna skelltum okkur út að labba með krakkana í gær og var ég í kjól og hlébarða leggings við....Já Nýja nafnið mitt er Cheeta lopez því maggz fannst ég líta út eins og hallærisleg 50 ára kona sem vildi vera töff...tengir svona buxur við það....vantaði loðpelsinn og gullskóna við :Þ Systir mín fékk viðurnefnið roswitha lopez því hún á svona kjól og meira segja bol...Benti maggz á að Þessar grey konur gætu þá fagnað þessa dagana....loksins komnar í tísku.... ;)

Ákvað svo í sakleysi mínu að taka dvd mynd og þann atburð var ég ekki búin að upplifa í 2 ár..jæja komin tími til NEMA svo segir afgreiðsluguttinn við mig HEyrðu þú ert með mynd frá 2005 frá okkur..ég nátturulega alveg bara HA!!!!!! Já og skuldin er 88.500...8|plís kom a gen..Já 88.500..HVaða mynd segiru og þá er mér tilkynnt að hún heiti fighting temptations eða whatever.....Mín í smá svona sjokki 88.500 fyrir videospólu meina veit að þetta er antík en kommon sko..Afgreiðsluguttinn glotti svo og sagði Hey þú leitar heima ok og ég stroka skuldina út.......Hjúfffffffffffffffffffff já gott að búa í sveitinni oft ;);) Fann samt enga svona mynd heima hehehehe.... Um helgina á að grilla og ætla Sigurrós og Bjarni að mæta með Þorgilsi og Grana með sér... Sem eru hestar og ætla ég þokkalega að nýta mér hestana í garðinum og skella mér loks á bak....já ef ég þori eftir seinustu ferð...Náði svo flott að detta af baki Á KYRRSTÆÐUM hesti................Jebbbs mér er margt klaufalegt til listanna lagt ;O

BLEBLEBLEBLE      ÆM ÁT!!!!!!!!!!pís


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 14:47:24 / maren

N N færsla

jebbsí pepsí..reunionið tókst fínt en ég tókst ekkert svo fínt það kvöld *hóst*..... Er eiginlega með smá móra yfir seinni partinum af þessu djammi...ekki verið svona skuggaleg í lange mange tíð...Enda þó nokkur staup staupuð þetta kvöld....já aldrei aftur ojjjjjjjjj.. Bjór verður held ég bara málið á þjóðhátíð því þynnkan sem ég vaknað með seinasta sunnudag er sú allra versta sem ég hef upplifað og upplifði það fram á miðvikudag :S LOL já er smá móðg yfir því að fólk hafi virkilega haldið að ég væri alltaf svona í glasi :Þ Neiiiii þá myndi ég ekki nenna að fara sjálf út að skemmta mér..issssssssss..hehehehehe..

Ég blæddi mér í bleik bleik stígvél fyrir þjóðhátíð og skellti svo upp regnhattinum og þrammaði hérna um....litlu mágkonu minni þótti ég asnaleg en mér þótti ég geggjað töff sko..já maður er komin á fullorðinsaldur og unglingar farnir að skammast sín fyrir mann;)..bara fyndið enda er bara komin spurning um að yngja upp því það virðist vera í tísku hjá nokkrum sem maður þekkir..:haha:........neeeeeee varla sniðugt að púkka upp á einhvern sem er nýskriðin upp úr því að skammast sín fyrir fullorðið fólk :Þ  Svona ef maður gerist heppin að lenda á svoleiðis eintaki  :Þ   Jæja spurning um að hætta bulli og fara gera eitthvað af fullorðinsviti...

ciao!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 15:05:35 / maren

Út í eyjum,,,,,,,,

Þokkalega..hendum okkur já eða fljúgum á miðvikudagskvöldinu :) Sjibbbí.. Gekk frá því í dag... Loksins loksins komu þessa béskotans hurðir sem við pöntuðum fyrir mánuði en nei pöntunin týndist og já það vantar 8 fm upp á flísarnar sem við pöntuðum líka fyrir mánuði.....urrrrrrrrrr þokkalega pirr..hef ekkert við þessar flottu flísar að gera þegar vantar 8 fm upp á8|Kallar á annan leiðangur að skoða flísar sem er ekkert það auðveldasta í heimi þegar kallinn vinnur 8 daga í viku en samt eru bara 7 dagar í vikunni.... ´Já miðað við þessa heppni sem virðist fylgja okkur magga saman þá hljótum við að verða mjög heppin á okkar gömlu árum....Hey já svo er reunion úr þingó 14 júlí og verður gaman að kíkja þangað...kannski maður leiðrétti bullið sem ég bullaði í 2 skólabræðrum mínum... Sagði þeim að ég væri strippari og þeir ættu endilega að koma kvöldinu eftir að horfa á mig hahahaha..væri bara á frívakt þarna að sötra vín :Þ Ætli þeir hafi komið kvöldið eftir hehe..hitti annan þeirra í byko með barn..kall að kaupa málingu..fannst ekki við hæfi að leiðrétta þetta þar hehehehe...Já nei Maren hefur aldrei starfað við þá iðju... Never takk..

´Mamma og pabbi samþykktu íbúða og barnaskiptin þannig að það er djamm í rvk um helgina..svona þegar allir fara í útilegu nei þá kemur Maren í bæinn...öfugsnúna ég alltaf..

Núna er svo gott veður og sá yngsti veikur :( þarf svosem að vera taka til og þrífa fyrir íbúðaskiptin því mamma kemur í kvöld.....  FARinnnnn að taka til ;)

Þangað til næst leiter geiter smeiter reiter beiter...


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 23:54:38 / maren

Sól í hjarta..sól í blabla

Ég gerðist svo góð að bjóða ma og pa í "sumarbústað" og stela þeirra húsi til að gista um helgina...já eða kalla þetta bara íbúðaskipti hahaha..Með minni íbúð fylgja börn sem þurfa mikla athygli og já "næturvörður" (maggi búinn að vinna mjög seint) og húsinu sem ég fengi myndi kannski fylgja 2 bræður en ég þarf ekki mikið að sinna þeim hehehe.. Gef þeim bjór þá þegja þeir allavega :Þ Mjög sanngjörn skipti og allir græða hehe !!  Svo er það bara reunion við eyjuna Heimaey um versló...7 ár síðan :s allt of langt síðan síðast en jiiii hvað minni hlakkar til að djamma og láta eins og fífl þar....er komin með uppsafnaðan fíflagang sem vantar út hehe..    Verður svo gaman er ég viss um ;)

Hef samt svo ekkert að segja hérna

Pís át!  Leiter smeiter geiter reiter


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 22:42:02 / maren

.............................blóm.......

Beljunum mínum vantaði gras þannig að ég málaði eldhúsið grænt ..

Umhyggjusamur eigandi..já svona þvílíkur..verst að þær mjólka ekki en hey er þá bara ánægður eigandi græns eldhúss:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 17:17:51 / maren

Sumarið er tíminn..já allavega minn

Allt frá því ég man eftir mér þá hafa sumrin verið skemmtileg...

Nokkur sumur fór maður með ömmu í sveitina en svo stækkaði maður..

Sumarið eftir 8 bekk (95)upplifði ég fyrsta alvöru kossinn(fyrir utan A bC leikina)

Sumarið eftir 9 bekk(96) fór mest í að kynnast fullt af nýju fólki ;)

Sumarið eftir 10 bekk (97)eignaðist ég fyrsta alvöru kærastann og var djammað mikið það sumar.

Sumarið (98) fengu flestir sem ég þekki bílpróf..farið var í þórsmörk,til eyja í fyrsta skiptið og þræddum við Stjáni og Elli alla staði á höfuðborgarsvæðinu þar sem fallegir bílar voru ;)

Sumarið (99) þarf ég að nefna meira en bara Völvufell :Þ Geggjað sumar með fullt af rugli en oftast bara skemmtilegu þótt sumt mætti taka til baka *roðn*

Sumarið (00) fór mestmegnis í það að halda upp á það með Ingimar að við værum að fara út til Mallorca..Mallorca ferð var farin og svo beint til eyja ..stíft djamm þetta sumar :)

Sumarið(01) Er aðalega bara líka eitt nafn Félagsmiðstöðin Barmahlíð Hf ;) úfffff það var klikkað sumar sem gekk mestmegnis út að 3 stelpur bjuggu saman með tilheyrandi djammi oft í viku *hóst* Lok sumars ég og maggi byrjuðum saman.. Sumum þótti fyndið að ég byggi í Barmahlíð híhíhíhí..

Sumarið(02) Gekk nú mest út á það vinna en það var samt skemmtilegt þar á milli....

Sumarið (03) já þarna fór maður að róast og naut þess að vera heima með barni og stundum skroppið í bæinn að mála hann rauðan.

Sumarið (04) Já *hóst* dálítið týnt sumar en man samt að ég fór á neistaflug um verslunarmannahelgina ..já örugglega gaman þá hahaha

Sumarið (05) Nýflutt í nýtt húsnæði..amma veiktist í jún og dó um miðjan ágúst..eina sumarið sem ég minnist ekki með einhverju skemmtilegu því það fór allt í þetta :(

Sumarið(06) Eignaðist ég litla kútinn minn og slappaði af með börnunum heima í sólinni sem var einhver ;Þ

Virðist sem þetta sumar fari í garðyrkju sem er nýuppgötvað áhugamál haha :)

Later :) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 22:47:30 / maren

........Skondið!

Ertu búin að finna pelann?? Snuddan fundin? Þarf hann ekki líka húfu????

Afhverju ætlaru ekki í nýju skónum þínum..það er gat á þessum og maður á ekki að fara í svoleiðis þegar rigning er MAMMA.........Já stundum er ég ekki viss hvor er mamman hér á bæ hahahaha..Krakkarnir á leið í smá pössun til afa og mín dama með allt á reiðum höndum hvað þarf að gera ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 00:57:39 / maren

Yfirlýsing hahaha

SARA ég var ekkert að grínast með þetta áðan!!!!;)

ví kan dú it end ví vill..vittu til :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 14:04:23 / maren

..................hana nú!!!

Ekki verður það X D eða X B sem fá mitt atkvæði ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 13:12:19 / maren

hmmmmmmmmm djúp pæling

Ætli það sé til syndrom eða fötlun sem´felst í því að labba á alla hluti sem eru á gólfinu??????????? spurning kannski að taka til :Þ

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 17:18:15 / maren

taut svona í tilefni þess að árin fljúga áfram

Já eitt sem hefur pirrað mig mikið síðan ég flutti hingað....sambæjarar mínir virðast ekki kunna að stoppa á gangbrautum....merkilegt alveg.... Get talið það á annari hendi hversu oft er stöðvað fyrir gangandi vegfarenda og ég séð til eða verið einn af þeim... ég get líka talið það á annari hendi hversu oft hefur ekki verið stoppað fyrir manni í Rvk....jaaaaa ef stór gulur bíll (strætó)getur stoppað fyrir manni í brekku og verið í fastri tímaþröng þá finnst mér að þeir sem deila með mér bæjarfélagi ættu geta stöðvað fyrir gangandi vegfarendum á jafn sléttu :Þ ..,..Eiga þeir ekki réttinn?????????? Ég bara spyr!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Litlir strumpar :)